Náttföt og þægindi ! Já það sem ég var að spégúlera í var það hvernig þið kjósið best að hafa náttföt ykkar, það er nefninlega svo misjafnt hjá fólki hvernig það hefur það, þeas ef það sefur í einhverjum náttfötum :)

Sumir sofa bara í einhverjum bol eða stuttbuxum.. eða bara einhver ákveðin náttföt í stíl. Og svo eru það auðvitað náttkjólarnir.
Sjálf vil ég hafa þetta frekar óáðkveðið, fremur svona frjálslegt. Koflóttar grænar náttbuxur eru t.d. mínar uppáhalds, svo er það bara misfjant í hvernig bol ég sef í.

Svo er það annað með þessi náttföt sem ég klikka ekki á. Það er að gleyma mér soldið í þeim alveg heilu dagana, mest svona í fríum eða svoleiðis. Svo talar maður nú ekki um sunnudagsmorgna, þá er nú ekki verra að hafa góð náttföt til staðar ! :)

Endilega deilið ykkar hugmyndum og siðum um þessi blessuðu náttföt.