nú ætla ég að seigja frá nokkrum búðum sem ég fer oftast í þegar ég er á eftirtöldum stöðum: Kringlunni,smáralind eða Laugarvegi

*Kringlan

í kringlunni eru margar flottar búðir mínar uppáhalds eru:


#Mótor: er geðveikt flott búð með flotta boli og buxur á góðu verði og búðin er alltaf troðfull af geðveikum fötum. Maður finnur alltaf eitthvað þegar maður fer þangað. Það er líka mjög góð þjónusta þar.

#Brim: Er með mjög flottar peysur og reyndar buxur líka. Þar eru aðallega seld Billabong,Nikita,no fear og Element föt mjög flott og vönduð (enda soldið dýr). En mjög flott búð.

#gallerý17 : ég versla reyndar aldrei þar það er way2 dýrt fyrir mig en ég sé samt alltaf eitthvað sem mig langar í. Þjónustan er ekkert það góð en maður fær samt alltaf einhverja. Þar eru bara föt í hæsta gæðaflokki. En geðveik búð samt.

#Next : er nýopnuð í kringlunni hef reyndar aldrei keypt neitt þar en fór þangað einu sinni og fannst fötinn mjög flott og frekar ódýr.


*smáralind

#Zara: er mín uppáhalds búð í smáralindinni hún er mjög ódýr og flott en það eru samt svoldið mikil gerviefni þar. en þetta er keðja og Zöru búðirnar eru útum allan heim. Mjög flott búð.

#Vokal: þessi búð er með R'n'b föt merkinn eru aðallega Baby Phat og svo J-lo línan fyrir konur og menn er Phat farm og zoo york og svo fleiri þetta er geðveikt flott búð en líka mjög dýr búð en það er ROSALEGA góð þjónusta þar.

#miss selfidge: Flott búð með flott föt það eru frekar lítil föt þar samt ég á einn bol þaðan sem ég elska flott nærföt líka þar. Flott búð og ódýr líka.

ég verlsa ekki mikið í Smáralind finnst Kringlan miklu betri þannig það eru ekki fleiri búðir í smáralind sem mér finnst eitthvað sérstakar. en það eru auðvitað fleiri flottar búðir sem ég versla ekkert í. =o)

*Laugarvegurinn

#DOGMA: það er geðveik búð aðllega með boli og húfur og svoleiðis mjög ódýr líka. Ein af mínum uppáhalds.

#Exodus: er reyndar ekki á laugarvegi heldur hverfisgötu. En þessi búð er með Hip hop föt fyrir stelpur og stráka. hún er frekar dýr þess vegna á ég ekkert þaðan =( en ef hún væri ódýrari ætti ég sennilega allt þar. Merkin þar eru aðallega Tribal og ENYCY. En stelpufötin þarna eru geðveik og ekkert svo dýr miðað við strákafötin. Líka mjög góð þjónusta ég ætti kanski að fara kaupa mér eitthvað þaðan bráðum.

#skarthúsið: þar eru mjög flottir fylgihlutir í miljónatali og einnig föt mjög flott búð á venjulegu verði. fer oft þangað.

#illgresi: er með second hand föt sem sagt notuð föt mjög ódýr og er samt með merkjavöru t.d. Diesel gallabuxur og Levis buxur svo geðveika boli. ég á fullt af fötum þaðan.


þessar búðir eru mjög flottar og það er gaman að versla föt á Íslandi =o)


kv. Csgirl (stella)
-Stella BjöRt!;*