Spice girls tíska Þegar að ég var svona 8-9 ára, þá gengu allar stelpur í einhverju spice-girls fötum og með alls konar glingur sem tengdist spice-girls, ég átti t.d. hálsmen og armbönd sem að mér fannst geðveikt flott þá, ógeðslega appelsínugular buxur með svona SPICE keðju, rosalega marga boli og allskona skóladót, þetta tíðkaðist í svona ár og svo varð þetta grafið og gleymt. Svo áttu allir þessar myndir og albúm sem þú gast sett myndirnar í, ilmvötn og svitasprey sem að margir áttu og ekki má gleyma Barbie dúkkunum sem að geðveikt margar stelpur áttu, það áttu líka allar stelpurnar í mínum bekk vínrauðar húfur með grænum Spice girls stöfum, og þá þóttist það rosa flott!
Svo voru rosa margar stelpur með sínar eigin spice girls hljómnsveitir og ég var allltaf látn vera Geri því að ég var rauðhærð, svo bjuggum við til hátalara úr sleifum og álpappír, stuttu seinna kom Spice World út og allar stelpur hrúuðust í bíó og ég heldáð ég viti ekki um neina stelpu á mínum aldri sem fór ekki á hana í bíó, í öllum afmælum var spice world og spice girls diskarnir sem allar stelpur á ttu bæði eitt og tvö spilaðir fram og til baka aftur á bak og áfram.
Ég var að pæla hvað áttuð þið spice girls og hvað fannst ykkur flottast? Finnst ykkur þetta ekki hallærislegt núna?
Kíktu á síðuna mína, hún er svo flott!