Hárið á Jennifer Aniston Hárið á Jennifer Aniston hefur alltaf vakið mikla athygli, og ég sé á myndinni sem er núna í gangi á Friends að hún er augljóslega búin að fara í hárlenginu, kannski er þetta gömul mynd, en ég hef líka séð þetta á örðum nýjum myndum, t.d. núna á Golden Globe. Við munum eflaust öll eftir hinni heimsfrægu “Jennifer Aniston klippingu”, og það er næstum hægt að segja að allir litlir kvenkynsaðdáendur hafi dreymt um að fá svona hár og margar hafi farið á stofurnar og beðið um svona klippingu. Þeir sem muna eftir þessum faraldi muna eflaust líka eftir því þegar hún klippti sig svo stutt (undir lítinn fögnuð margra aðdáenda) og meira að segja Brad viðurkenndi að honum finndist hún flottari síðhærð. Í 8. og 9. seríu Friends var hárið í axlasídd en nú virðist það verið komið langt niður á bak, greinilega um hárlengingu að ræða, en hún ætti nú að hafa ráð á henni, enda kostar hún aðeins um 30-40 þúsund krónur, sem mér finnst ekki svo mikið MIÐAÐ VIÐ hvað þetta er geðveikt vesen.

Það eru víst nokkrir staðir í Reykjavík sem hægt er að fara á til að fá svona lengingu, en eins og ég sagði kostar hún um 30-40 þúsund (held ég) og þess vegna skil ég ekki hvað margar stelpur hafa verið að fá sér svona, þetta er náttúrulega enginn smá pengingur, þó svo að verðið sé alveg í samræmi við vinnuna á þessu.
Þekkið þið eitthvern sem hefur fengið sér svona, og sést ekki alveg augljóslega að þetta sé gervi þegar maður skoðar þetta nálægt? eru ekki bara bundnir eitthverskonar hnútar til að festa gervihárið við alvöru hárið?