Lögguhúfur Mér finnst lögguderhúfurnar sem löggan notar núna vera fáranlega hallærislegar og ljótar og gera lögguna bara asnalega og óvirðingarverða. Mér fannst gömlu hvítu húfurnar sem voru meira eins og stúdents-, skipstjóra-, eða flugmanna- miklu flottari og þær létu lögguna líta virðulega út. Það er kanski bara vegna þess að þannig var löggan þegar ég var á leiksskóla og þá leit maður sko upp til laganna varða.

Almennt séð finnst mér (þessar tíbísku amerísku) derhúfur asnalegar.

Hvað finnst ykkur tízkulöggur og aðrir???