Er til tíska í dag? Hvað finnst ykkur? það er svo margt í gangi núna og mér finnst ekki vera neinn meginstraumur í fatasmekk ungs fólks í dag. Bara allt og ekkert!!! GOTT MÁL. Ég vil hvetja alla til þess að ganga í þeim fötum sem þeim líður best í líkamlega OG andlega! Það er til fólk sem líður bara mjög illa í íþróttafötum og er engan veginn að finna sig þar og ÖFUGT náttúrlega. Þannig er þetta bara. Fötin eru okkar ímynd. Erum við að sýna okkar rétta sjálf? Skapa fötin manninn eða er það maðurinn sem skapar fötin?