þannig er það að þegar ég fer í það mission að kaupa mér föt fer ég yfirleitt heim tómhent og ástæðan er: ég kem inní búð og í glugganum var gína í alveg hreint ótrúlega flottum buxum eða peysu eða eitthvað. ég labba inní búðina og spyr ofmálaða afgreiðslugelluna um tilteknar buxur. þegar ég er svo komin inní mátunarklefann og í buxurnar eru þær ekkert flottar á mér og mér verður hugsað til gínunnar sem stendur og ber buxurnar ótrúlega vel, þá fer ég í fýlu hugsa með mér að ég geti ekkert keypt mér neitt þar sem ekkert er flott á mér. fer með buxurnar til afgreiðslugellunar og segi: “Æ, þær voru ekkert spes”. Labba út hálfgrenjandi yfir því að vera ekki eins og gínan full sjálfsvorkunar um að ég muni aldrei finna neitt á mig.+
kannist þið við þetta?