Sæl verið þið,

Held að það væri ekki vitlaust að fríska uppá þennan banner sem er hérna fyrir ofan okkur og vill ég því hvetja ykkur til að senda inn, þeir þurfa að vera 629px × 107px að stærð og í .png formati.

Viðfangsefni er frjálst svo lengi sem það tengist tilverunni eitthvað, svo mjög vítt efni sem þið hafið að vinna með.

Ég mun tímabundið virkja myndakubbinn og þið getið sent bannera þangað inn, skilafrestur rennur út 2. október svo þið hafið tíu daga til að gera þetta.
Myndirnar verða þó ekki samþykktar heldur mun ég bæta þeim við hérna fyrir neðan vegna gífurlegs flæðis mynda frá undiráhugamálum Tilverunnar.

Eftir þann tíma verður kosning innan áhugamálsins um hvaða banner á að vera, stjórnendur áskilja sér þó þann rétt að hafna bannerum ef þeir brjóta skilmála Huga.

Gerið nú eins vel og þið getið og leyfið Photoshop hæfileikum ykkar að njóta sína.

Banner 1 - Koolur
Banner 2 - Touche
Banner 3 - Benninn
Banner 4 - Chiquitita

Fyrir hönd stjórnenda Tilverunnar,
IngvarL