Sæl verið þið, rosalega hefur verið mikið af þráðum uppá síðkastið sem spyrja bara einfaldara spurninga, nú er hægt að sjá auðveldlega að enginn í raun nennir að skoða þessa þræði, fólk bara svarar þeim og engin gáfuleg umræða myndast.

Nú ætla ég ekki að banna þessa þræði en þvert á móti vill ég hvetja þá sem hafa verið að búa þá til að búa frekar til könnun, samanber þráðinn með augnlitinn (http://www.hugi.is/tilveran/threads.php?page=view&contentId=6109130&boardId=216) þarna hefði auðveldlega verið hægt að gera könnun þar sem hefði verið hægt að sjá miklu skýrar dreifingu á augnlit hjá þeim sem stunda áhugamálið.

Einnig fyrir þá sem finnst svo gaman að hugsa um stigin þá færðu fimm sinnum fleirri stig fyrir könnun heldur en þráð.