Örbylgjuloftnetið mitt er e-ð bilað og ég næ bara RÚV núna. Ég hangi heima veikur, videoið bilað svo ég ætlaði bara að horfa á sjónvarpið í kvöld. En hvað er þá á RÚV núna, nú klukkan 19:30 til 21:30 er “Norðurlandaráð 50 ára, bein útsending frá finnsku þjóðaróperunni”. Guð minn almáttugur, tveggja tíma helvíti. Ég veit ekki um eina einustu manneskju í öllum heiminum sem gæti hugsanlega haft gaman að þessu pís of krappi, nema Hannes Hólmsteinn og einhver álíka furðuverk. Þetta borga ég fyrir andskotans menningarsnobb. Fólk vill eitthvða annnað en þetta rusl.