Hvernig væri að útbúa skilaboðaskjóðuna þannig að það væri hægt að merkja við nokkur skilaboð í einu sem maður getur svo eytt eða gert einhvað annað við.
Ég er svo leið á því að þegar ég fer að taka til þar þá verð ég að eyða alltaf bara einu í einu.
Ég vildi svo gjarnan geta hakað við nokkur í einu og svo bara einn takki til að eyða því sem ég hef merkt við, það væri mikið auðveldara og ég er viss um að nargir væru duglegri við að taka til í skilaboðaskjóðunni ef þetta væri þannig.