Eftirfarandi póstur er byggður á staðreyndum sem ekki eru endilega sannar, en þó afar líklega (þeas. að allir korkar með orðinu ei*elti verði teknir í burtu).

Afsakið mig, en: Hvers konar pempíur stjórna eiginlega huga?!
Að stroka út alla korka með orðinu ei*elti?!
Ég meina, má ekki tala einu sinni núorðið? Á umræðuvef?!
Einelti er alvarlegt mál sem stundum þarf að RÆÐA UM!!
Ég meina það, það er erfitt að lýsa hneykslun minni!
Það þarf að ræða sum mál, til þess er þessi vefur að mestu leyti, er það ekki, að TALA?! Og þetta er alvarlegt mál, og það er eiginlega eftirsóknarvert að ræða um svona á þessum vef.
Hvað næst?!
Verður orðið “rasistmi” bannaður? “Stríð”, “sprengjur”, “lygar”, “þunglyndi”, “þjófnaður”?!! Og kannski seinna: “leiðinlegt”, “asnalegt”, “kynlíf”, “byssa”.. og allt þetta á undan skítkasti?!
Ég meina það, ÞETTA ER GJÖRSAMLEGA F-Á-R-Á-N-L-E-G-T!!!!
Að banna umræður um slæman hlut á umræðuvef.. hvað, heldur vefstjori kannski að heimurinn sé fullkominn, og þessi skríli á huga eigi ekki að reyna að halda öðru fram?!
DÍSES!!


PS. Eins og ég sagði biðst ég afsökunar á harðorðuðum kork, en ég er ákaflega reiður út af þessu.
<br><br>—————————–
Ef að heilinn væri nógu einfaldur til að við gætum skilið hann værum við of heimsk til að skilja hann!
_____________________________

Hugrakkasti stríðsmaðurinn er sá sem færir frið.
—————————–