Ég var á rölti í gegnum mbl.is og fann þar frétt sem mér fannst algjör viðbjóður.
Ég vildi ekkert að vera að endurskrifa uppá misskilning að gera , svo að ég birti hana bara eins og stóð <a href="http:// á mbl.is/"> </a>


51 árs gamall Norðmaður frá Stavanger hefur verið dæmdur í rúmlega 10 ára fangelsi fyrir að hafa haft samræði við dóttur sína í sjö ár. Hann var einnig dæmdur til að greiða dóttur sinni eina milljón króna í miskabætur.
Maðurinn viðurkenndi fyrir dómi að hafa misnotað dóttur sína í sjö ár, frá 7-14 ára. Hann átti kynferðislegt samræði við hana bæði heima hjá þeim og í sumarhúsi þeirra í Sirdal. Það var ekki fyrr en móðir stúlkunnar kom að þeim að maðurinn flutti að heiman og var kærður í kjölfarið.