Þangað fór ég á miðvikudegi(minnir mig) fyrir svona 11 dögum síðan og þangað ætla ég aldrei aftur!
Ástæðan er sú að ég kom þarna með rútu niður í miðbæ og var með stórum hóp af fólki. Við máttum ákveða hvert við færum að borða og datt okkur vinkonunum í hug að fara þangað. Þegar rútan var stoppuð niðri í bæ hlupum við vinkonurnar af stað og urðum fyrstar(fyrir utan einn strák sem hafði hlaupið hraðar en við). Ok þegar inn kom var okkur boðið sæti og fengnir matseðlar. Fyrst fór konan sem var í salnum til stráksins sem kom á undan okkur(sem er mjög skiljanlegt). En svo þegar hún var búin að taka pöntunina frá honum komu allir hinir úr hópnum og fengu sér sæti. Við vinkonurnar vorum tilbúnar að panta svo við lögðum frá okkur matseðlana í eina hrúgu á borðið og svo biðum við bara. Þegar allir voru búnir að fá sér sæti gekk hún með matseðla á borðið við hliðina á okkur(við sátum við borðið sem er nær dyrunum en undir upphækkuninni) svo biðum við aðeins lengur og svo eftir smá tíma gekk hún að borðinu sem var við hliðina á okkur og fór að taka niður pöntun þar. Okkur fannst þetta nú ekki alveg sanngjarnt(enda búnar að bíða lengur en þau) svo að ein af okkur fór til hennar og bað hana að koma næst til okkar því að við hefðum komið á undan öllum hinum og hún sagði bara já) svo biðum við meira og ekkert bólaði á henni. Svo loks kom hún en fór þá upp á upphækkunina(pallinn) og byrjaði bara að taka pantanir þar!!!! við ákváðum að bíða soldið lengur og hún hélt bara áfram að taka pantanir á pallinum fyrir ofan okkur(hjá fólki sem kom löngu á eftir okkur). Þolinmæði mín var löngu horfin en ég beið soldið lengur með vinkonum mínum og sátum við enn. Eftir að við vorum búnar að bíða í allavega hálftíma(frá því að við vorum búnar að ákveða okkur) gáfumst við upp á þessarri ömurlegu þjónustu og stóðum allar saman upp og gengum út!
fórum miklu frekar á Subway sem á þakkir skyldar fyrir að vera þarna niðri í bæ ;)

Langaði bara svona að benda ykkur á þetta hvað það er léleg þjónustan þarna og stelpan sem gekk um var ljóshærð og ætla ég aldrei að fá mér pizzu þarna aftur!!!
Pizza67 Tryggvagötu sökkar feitt og er bara ömurlegt!
Vissir þú að tungan í steypireyð er jafnþung og fíll?