Í fréttunum á RÚV í kvöld var talað um að XXX Rottveilerhundar og Tóbaksvarnarnefnd væru að gefa út veggspjald saman. Þar stóð eitthvað á þessa vegu: “Má bjóða þér smók?” “Já, ef ég má bjóða þér sinnepsgas”. Fyrir þá sem ekki vita er sinnepsgas eitrað, og var t.d. notað í seinni heimsstyrjöldinni og hefur verið notað í mörgum stríðum eftir það. Þá var sagt frá því að einhver skólastjóri vildi ekki hengja veggspjaldið upp þar sem sinnepsgas hefði drepið svo marga í gegnum tíðina.
Ég var að pæla í því hvað væri að þessum skólastjóra, reykingar hafa örugglega drepið fleiri en gasið. Ég vildi gjarnan heyra ykkar álit á þessu.