Þetta er ekki beint nöldur, því setti ég þetta hér í staðinn fyrir í nöldrið! Enda er ég ánægð með þessa könnun og það verður fróðlegt að sjá hvað hugarar hafa um þetta mál að segja. Mér aftur á móti hefði þótt þægilegra ef það hefði verið val um “Já en bara léttvín” eða “bara bjór.”

Það er mín reynsla eftir að hafa rætt þessi mál við fólk, að sumir sem segjast vera á móti þessu gætu hugsað sér að bara léttvín væri selt í verslunum og ég er á þeirri skoðun líka. Ég vil ekki sjá bjór í Hagkaup eða Nóatúni og merki því við “Nei”.<br><br><b>Kv. EstHer</b><br>
– <a href=" http://estherp.blogspot.com">Bloggið</a> mitt –
Kv. EstHer