Okey stelpur!! ég vil bara auglýsa það að æfingar hjá kvennaliði bjarnarins fara að byrja og okkur vantar stelpur!! endilega komið ef þið hafið áhuga, þó þið prufið ekki nema eina æfingu… og ekki segja “ég þori ekki” !! það er ekkert að þora, ég skal lofa ykkur því að það meiðist enginn á fyrstu æfingunni sinni, þá ekki nema smá marblettur.. en kommon, það er ekkert!!!

það eru líka skemmtilegar keppnisferðir til Akureyrar og útlanda, og það er ekkert jafn gaman og að ferðast með þessum frábæru stelpum sem eru að æfa, og við vonum að fleiri frábærar komi til að halda stemmingunni uppa!! :oT

mig langar bara að segja að allir eru velkomnir, hvaða aldurshópur sem er!! og ef þið eruð með spurningar sendið mér þá skilaboð og ég svara eins fljótt og ég get!!

prufið eitthvað nýtt, og hafið gaman af!! ;)

vona að ég sjái sem flestar koma og prufa!!

hei, hei, og hó hó! sjáumst á svellinu!!
"