Ég er kannski bara svona skelfilega gamaldags en er ég alein um að finnast einkennilegt að hérna inni skuli vera börn á aldrinum 8-12.ára og það skuli allir komast inn á hugi.is/kynlíf ?
Hafið þið skoðað nýlega hvað er þar inni, ég veit það bara sem móðir að ég kæri mig ekki um að börnin mín séu að lesa sumt af þessum sögum, greinum og korkum. Ég geri mér fullkomlega ljóst að netið er uppfullt af klámi, kynlífi og svipuðum hlutum og eru inná kynlíf, en sem betur fer eru flestar þær síður á ensku og sem dæmi eru sögurnar hjá Tigercop skelfilega opinskáar.
Er ekki komin tími á að minnka þetta eða að minnsta kosti fylgjast betur með því sem er samþykkt hérna ?
9.ára sonur minn hefur t.d gaman af því að lesa greinar á Sims og fá upplýsingar og eins á gæludýr, en ég get ómögulega leyft honum að vera hérna inni án þess að sitja yfir honum og það finnst mér fáranlegt.

Hver er það sem ber ábyrð á þessum málum hérna ? Mér finnst einkennilegt að síða sem er í eigu Símans skuli ekki passa sig betur á því að vera ekki að dreifa klámi í börn.

Mig langar jafnframt að fá að vita hvert ég get sent þessa kvörtun mína og þá meina ég hver er yfirmaður eða stjórnandi ykkar ?

Reg.
Elísa