Úlpusumar??

Ég er orðin frekar pirruð á veðrinu á þessu landi. Í allan júlí er búið að vera svo ömurlegt veður, alltaf skýjað og kalt og rigning. Ég þarf því miður að taka strætó í vinnuna kl. hálf átta og ég væri helst til í að vera í Maxgalla þá, þvílíkur kuldi er þá. Venjulega þarf maður ekki jakka á sumrin sko, en þetta er búið að vera þvílíkt kuldasumar.

Pirr pirr.. einhver sammála?