Gerið það sem ykkur hefur alltaf langað til að gera, njótið lífsins til fullnustu, gerið ykkur grein fyrir því hversu heppin þið eruð að standa hér á hverjum degi í þessari yndislegu tilveru, lofið Guð, slappið af, étið hamborgara (bara varð að skjóta þessu inn :D) og munið.. munið hvað þið eruð heppin að ykkur hlotnaðist þessi yndislega gjöf sem kallast líf.
Heimurinn er góður - loftsteinninn á ekki að skella á okkur eftir þessi sautján ár.
Kallið mig væmin aula, asnalegan Benny Hinn, eða hátíðlegan hálfvita, mér er sama, njótið bara lífsins.
Friður.<br><br>—————————–
Ef að heilinn væri nógu einfaldur til að við gætum skilið hann værum við of heimsk til að skilja hann!
_____________________________

Hugrakkasti stríðsmaðurinn er sá sem færir frið.
—————————–