Nú er ég að spá í hvers vegna áhugamálið Ali G er yfirhöfuð til hérna á huga.is þar sem það hefur verið úrskurðað látið af ásókninni inn á það ?
Á þessu áhugamáli hefur ekki verið send inn grein frá byrjun JÚNÍ og korkur frá miðjum júlí og eina ástæðan fyrir því að þetta áhugamál var tekið upp var væntanlega vegna myndarinnar ALI G inda house. En fólk verður að face the facts og játa að þetta hefur ekkert með að vera áhugamál enda hefur það sínt sig að það getur ekki borið sig.
Annað mjög gott dæmi um hve dautt þetta áhugamál er þá er þetta umfangsefni kannaninar sem er í gangi þar núna, “ Ferðu einhvern tímann á spjallið á Huga? ”. This speaks for it self !
Með þessari grein er engan veginn verið að vega að áhugafólki Ali G þar sem ég er einn af þeim sem hafa mjög gaman af þáttum hans og bíómyndinni en ég legg til þess að við, þau sem stundum huga, grípum til líknardráps á þessu áhugamáli.

Kveðja
Lancelot