GUÐ MINN GÓÐUR ég vinn hjá flutninga fyrirtæki hér í reykjavík. Ekki er það neitt frá sögu færandi ef það væri ekki fyrir nýja starfsmanninn sem ég er að vinna með. Hann er Nokkrum árum eldri en ég, hefur meira próf og er að læra tölvunarfræði. En hann er líka einn sá allversti strafsmaður sem ég hef séð. Hann hefur ENGANN vilja til að gera neitt, það þarf að BERJA hann áfram til að gera eitthvað, og svo þarf maður að endurtaka allar leiðbeiningar, og endar maður loks á því að gera þetta sjálfur. Hvernig er þetta hægt. Hann getur varla keyrt bíl, hann drepur á þeim, hann er ÓSKILJANLEGA ÓÖRUGGUR hann er að borderline-a það að vera sækó, ef enhvern fer að tala um eitthvað kvennkyns, þá fer hann á stjá og spyr “er hún á lausu”, “ertu að DÆLA í hana”, og svo er hann alltaf að segja þessar POINTLESS SÖGUR SEM ERU EKKERT SPES. Getur einhver er reddað mér “cleaner” og hreinsað þennan gaur í burtu C´mon er ekki einhver þarna úti sem vill taka eitthvað smá fyrir þennan þrifnað, ég er alveg að fá grænar bólur!