Jæja ég hef nú verið að lesa greinar eftir hann vin okkar og félaga p4a og séð hvernig hann verður fanatískari með hverri greininni sem kemur frá honum. Fyrst tók ég manninn alvarlega en núna held ég að þetta sé einhver gaur út í bæ sem er að fá þokkalegt kikk út úr því að stuða fólk ærlega hérna á síðunni og það er svo að takast hjá honum. Eins og í fyrstu greininni sem hann sendi inn og umræðurnar sem á eftir fylgdu þá sagði hann sjálfur ekkert vera neitt trúaður en núna er hann allt í einu orðinn sannkristinn maður sem trúir mjög bókstaflega á allt sem stendur í biblíunni. Og eftir að hann sagði við mig að ég gæti alveg skipt um kynþátt og orðið svört og ef ég myndi eignast barn með hvítum manni þá yrði það blendingur, þá tek ég ekki mark á einu einasta sem þessi maður lætur út úr sér. En allavega þá trúi ég ekki að maður getir verið svona þrjóskur á allar staðreyndir (eins og að segja að hámenntaður prófessor sé gyðingahatari því hann skrifaði grein á háskólavefnum um það að gyðingar væru ekki kynþáttur heldur trúflokkur) og kannski ætti fólk bara að hætta að láta þennan mann rugla svona í sér. Jah nema það hafi lúmskt gaman að láta stuða sig aðeins. <br><br>kveðja batteri ;)
kveðja batteri ;)