Ég ætla nú bara að kvóta í nýlegt bull sem peace4all hefur látið frá sér, góða skemmtun.

“Ég trúi því að hún sé flöt því að biblían segir það”.

“Þessir pýramídar hafa hugsanlega skapast ásamt öðrum steinum og náttúrum þegar að guð skapaði jörðina”.

“Jörðin hefur bara verið til í 5000 ár”.

Þetta finnst mér best:

“Biblían segir að jörðin sé 5.000 ára gömul en þessir vísindamenn hafa bara ekki rétt fyrir sér því að þeir geta ekki vitað hvort jörðin er svona gömul því að þeir eru flestir undir 100 ára sjálfir og geta því ekki sannað þetta alveg”.

“Ég hef ágæta rökhugsun” & “Ég hef gengið í grunnskóla og ég rökstyð flest sem ég fullyrði”. (þetta finnst mér líka fyndið)


…en hann segist EKKI vera bókstafstrúarmaður!