Ég spillti kóki yfir allt lyklaborðið mitt fyrir 2 dögum, hreinsaði það eins og ég gat, tók alla takka af og allt en samt, deginum eftir, þá var það orðið rosalega sticky og ómögulegt.

Ég hugsaði að ég myndi fá mér nýtt lyklaborð, en áður en ég gerði það vildi ég prófa og sjá hvort maður gæti sett það bara í baðkar og látið það liggja þar í nokkra klukkutíma og þurrkað það svo. Ég þurrkaði það í nokkra klukkutíma og prófaði svo en fékk bara mjög þekkt atvik þar sem ef ég ýti t.d. á ‘A’ þá kemur: ‘7RS’ eða eitthvað í staðinn og ekkert hægt að skrifa.. Ég hugsaði bara: ‘Jæja, ég kaupi nýtt á morgun’… En aaaaaááður en ég geri það ætla ég að prófa að taka það í sundur og leika mér.. Tek allt drasl í sundur sem ég tel ónýtt… Allaveganna, þá kemst ég að því að það eru 3 filmur og ég sé enþá vatn hér og þar, þar sem filmurnar eru samanklemmdar, þá myndi þetta vatn aldrei þorna. Ég tek þær í sundur, ríf einhver seals og svona til þess að taka þær alveg í sundur og þurrka svo allt. Voila, virkar alveg eins og nýtt.. Ekkert sticky lengur vegna baðsins og takkarnir skrifa allt rétt eins og sést á þessum þræði!

Bætt við 8. nóvember 2011 - 15:03
Ef þið lendið í þessu þá gerði ég guide til að laga þetta:

http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=20&t=42952
Moderator @ /fjarmal & /romantik.