Afhverju er ekki búið að loka síðunni? Bara, mín vegna. Jafnáhugavert og það getur verið stundum að kíkja “aftur í tímann” og sjá hvað maður hefur alltaf verið kúl langar mig mest að skjóta mig í hvert sinn sem ég geri það, og vitneskjan að hver sem er geti hlegið að mér rífur í hjartað, teygir það og tætir, svo eftir stendur lítið annað en blóðpumpandi líffæri.

Ætli aðalnöldrið sé ekki hversu heimskur ég var þegar ég var yngri en ég er núna. Kem svo eftir fimm ár og nöldra yfir hvað þessi þráður er heimskulegur, og að hjartalíkingin sé jafnsensmeikandi og kokktónlist.