Segið mér kæru hugarar…

Er einhver sérstofnun eða eitthvað þannig þar sem ég get farið og látið skoða ástandið á lungunum á mér, foreldrar mínir búnir að gefa mér þá voða “frábæru“ gjöf að reykja í kringum mig og leyfa mér að verða fyrir óbeinum reykingum frá fæðingu og þetta er loka spilið mitt til að reyna að fá þau til að hætta, eða þá að láta athuga ástandið og ef það er slæmt að koma þeim í skilning um að þetta sé ekki að ganga.

Finnst ég hafa lesið um fyrir ekki svo löngu sér deild sem sæi um svona.

Endilega ef einhver veit hvert ég get snúið mér að senda mér línu, yrði mjög þakklátur.

Mbk, stefán