Okei rétt áðan lennti ég í þessum furðulega hlut..
Mér finnst eins og ég sé nýstiginn út úr sjónvarpsþætti eða einhverri gamanmynd.

Ég var úti að taka myndir af sólsetrinu og síðan heyri ég í bakgrunni í konu með hávaða. Mér heyrist að hún sé drukkin og það hljómar eins og hún sé að tala reiðilega í símann
“Þetta er fokking búið” og eitthvað
Síðan lít ég fyrir aftan mig og sé að hún er að koma labbandi að mér og þá sé ég að hún er augljóslega búin að fá sér smá.

Hún vaggar smá í göngulagi og svona
hún labbar að mér og byrjar eitthvað að tala við mig
ég spjalla aðeins við hana síðan hugsa ég með mér
að það sé ekki sniðugt að hún sé ein þarna eitthvað full
þannig ég spyr hana
“áttu ekki heima þarna?”

og ákveð að styðja við hana og labba með hana að svalahurðinni
síðan biður hún mig eitthvað að koma inn
og ég bara eitthvað
“æji ég veit ekki”

Og hún segir að hún sé ekki að fara að gera neitt slæmt við mig og ég bara eitthvað okei
fer inn um svalahurðina.

Hún biður mig að setjast í sófann, ég sest í sófann.
Hún sest í sófann og byrjar eitthvað að tala.
Hún fer úr peysunni.

Ég hugsa með mér okei mér finnst eins og ég eigi ekki að vera hérna.
stend upp og ætla að fara í burtu út um svala hurðina og láta mig hverfa.

Þá heyri ég hljóð í dyrabjöllu og hurðarhún sem opnast.
Karlmannsrödd segir
“Halló ég er kominn heim”

Ég stend uppúr sófanum labba að svalahurðinni
Maðurinn lýtur á mig
og síðan á konuna og segir hálfhissa en samt smá reiðilega “Hvað er eiginlega í gangi hérna”

Ég labba hröðum skrefum út um svalahurðina og fer í burtu
Lít ekki til baka og vona að maðurinn sé ekki að fara að koma á eftir mér reiður.

Mér brá þegar þetta gerðist
og eftir á að hyggja hefði ég kannski ekki átt að fara þarna inn
konan hefði getað drepið mig eða eitthvað..

Allavega
mér fannst þetta bara vera svona eins og moment úr sjónvarpsþætti eða bíómynd eða eitthvað.

Ég held að fulla konan hafði hugsað með sér að tæla mig heim til sín og að hún hafði vitað að von væri á manninum og ætlað að nota mig sem svona til að láta þetta lýta illa út eins og hún væri að halda fram hjá eða eitthvað.

úff fullt fólk er spes
ætla að halda mig frá því

hafið þið lennt í einhverju svona virkilega spes?


Bætt við 4. maí 2011 - 11:51
Já þegar ég sagði að hún hefði farið úr peysunni þá var hún á brjóstarhaldaranum

Og þegar ég sagði “átti ekki heima þarna” þá bennti ég á húsið hennar sem var þarna rétt hjá