Póstaði sömu spurningu á /gulloldin en vegna þess að 24 klukkustundir eru liðnar og mér liggur á ætla ég að taka mér það bessaleyfi að spyrja líka hér.

Fólk, hvar fæ ég svít tónlistarplaköt (fyrir utan þann ágæta möguleika að láta prenta þetta sjálf)?
Ákjósanlegt: t.d. Led Zeppelin, Pink Floyd, The Who o.s.f.rv… þið fattið þetta.

Takk, takk.


Bætt við 19. febrúar 2011 - 17:34
Straujaði kolaportið og fann einn kassa með plakötum en ekkert þeirra var eitthvað sem ég er að leita eftir, þótt Hilary Duff og Avril Lavigne plakötin hafi vissulega togað í mig.