Sælir hugarar.

Ég held að ég sé með ofvirka svitakirtla í handarkrikanum.
Hef allavega oft heyrt einhverja vera að segja það, því ég svitna mjög mikið í kringum hóp af fólki.
Þetta er ekkert stress eða neitt þannig, bara þegar að ég er innan um margmenni, þá fer allt á fullt.
Er samt ekkert að tala um að það fossi úr handarkrikanum á mér, það kemur bara svolítil lykt, og ef ég geri ekkert í því, þá verður hún viðbjóðsleg.

Þannig að spurningin er;
eru einhverjir læknar sem geta gert svitakirtlana óvirka, eða dregið úr þessu einhvern veginn?

xoxo
cumqueen