Útvarpsleikrit

Konan í símanum: Upplýsingar!

Karlinn sem hringir: Já góðan daginn, ég er að athuga hvort konan mín sé að halda framhjá mér?

Konan í símanum: Er hún flóttaleg?

Karlinn sem hringir: Ehh Já.

Konan í símanum: Já, þá er nokkuð öruggt að hún sé að halda framhjá þér. En hún er með nagandi samviskubit og þorir ekki að segja þér frá því. Innst inni elskar hún þig þrátt fyrir allt.

Karlinn sem hringir: Jájá, veistu nokkuð með hverjum?

Konan í símanum: Hvar vinnur hún?

Karlinn sem hringir: Vélum hf.

Konan í símanum: Já augnablik, “pikkar á lyklaborð”, já það er 90% líkur að hún sé að halda framhjá þér með Heiðari Sigvaldasyni, 42 ára framkvæmdastjóra fjármálasviðs.

Karlinn sem hringir: Ehh jájá, verður maður þá ekki að hringja í hann?

Konan í símanum: Já ég skal gefa þér samband, augnablik….. Síminn hringir…

Maðurinn sem svarar símtalinu: Heiðar.

Karlinn sem hringir: Já góðan daginn, ég var að frétta að þú héldir við konuna mína!

Maðurinn sem svarar símtalinu: Nú!!! Hvernig veistu það?

Karlinn sem hringir: Ég hringdi í upplýsingar!

Maðurinn sem svarar símtalinu: Jájá, það er nú bara vegna þess að þú sinnir henni ekkert!

Karlinn sem hringir: Nú hvernig veistu það?

Maðurinn sem svarar símtalinu: Nú ég hringdi í upplýsingar!