Kæru gúmmí Íslendingar .. hvað segið þið um að koma í mótmælagöngu niður á alþingi á næstunni. Síðasti fáránlegi dómurinn féll í máli 7 ára stúlku á Austurlandi, rúmlega þrítugur maður misnotaði hana .. þar að auki var hann stjúpfaðir stúlkunnar. Í gær las ég yfir dóminn (sem er vægast sagt ógeðslegur), það er hreint ótrúlegt hvað fólk er að komast upp með. Þessi einstaklingur stóð fastur á því að stúlkan um 5 ára aldur (þegar allt þetta byrjaði) hafi byrjað á kynlífsathöfnum og hann hafi bara “tekið þátt” óviljugur, hann smitaði hana af tveimur kynsjúkdómum … og reyndi “anal” við hana í því skyni að meiða og refsa barninu. HVERNIG Í ANDSKOTANUM gat dómurum fundist 18 mánuðir hæfileg refsing? Er ekki kominn tími til að við tökum höndum saman og gerum ærlegan urslagang í eitt skipti fyrir öll og fáum harðari dóma í þessum viðbjóðslegu málum ??
Sameinumst RÚSTUM því …. þetta réttarkerfi okkar íslendinga er til háborinnar skammar, ég skammast mín fyrir að vera íslensk kona þegar ég heyri af jafn mikilli heimsku af dómsvöldum. En ég mun ekki skammast mín lengi því nú er kominn tími til breytingar. Mig vantar alla þá reiðu einstaklinga sem lesa þetta bréf til að koma fram hefnd fyrir öll þau börn sem hafa þurft að líða fyrir þetta fáránlega réttarkerfi okkar .. eða ætti ég að segja óréttarkerfið okkar. Allir þeir einstaklingar sem vilja taka þátt í nýrri stefnubreytingu í réttarkefi okkar endilega kíkið á þessa síðu svo við getum búið til hernaðaráætlun og látið hana standast allar þær orrustur sem framundan eru. Allir fyrir einn og einn fyrir alla … höggvum mann og annan .. því það mælti mín móðir =) .. sýnum nú víkingaeðlið í okkur og látum verkin tala.

http://130.208.144.221/rettlaeti/index.php