Svo þarna er ég, röltandi einhverstaðar, þegar ég sting hendinni í vasann og finn fyrir einhverju köldu og hörðu, umvafinn einhverju gúmmílaði með 2 geirvörtur á sitthvorum endanum. Var þetta ekki bara mp3 spilari! Hohoho, mér til mikillar ánægju við þennan merkilega og alls ekki undirbúna fund við tónskrímslið ákveð að hafa smá tónlist við bröltið og mestlega svo ég þurfti ekki að hlusta á þennan væluvind. Fucking vindar. Vita ekki neitt. Allavega, beintengdur við afþreyingu kveiki ég á spilaranum en ÓNEIHANNSLÖKKTISTRAXAFTURÁSÉRÓMÆ. Þá hafði hann óvart færst yfir í lás. Hohohohoho. Síðan kviknar á honum. Eitthvað random byrjar. En eitthvað er að. Eitthvað er ekki eins og það á að vera. Og það er hinn helmingurinn af þessu djöfulsins drasli. Alltaf. Aaaaaaallltaaaaf…. Eitt virkar fullkomnlega. Hitt fremur sjálfsmorð því það var of lame til að höndla pressuna. Greinilega.

igh…. bugg
Let me in, I’ll bury the pain