ok áður en ég byrja að tala um trú hér þá tek ég fram að ég er trúlaus en ég er samt gjörsamlega hlutlaus gagnvart trúarbrögðum. mér er alveg sama að hvað fólk trúir á en ég reyni að taka ekki þátt í því og umræðum um skitun yfir trúarbrögð.

en ég fór að pæla í einu og það er varðandi fyrsta boðorðið samkvæmt 5. Mósebók

''Ég er Drottinn Guð þinn, sem leiddi þig út af Egyptalandi, út úr þrælahúsinu. Þú skalt ekki hafa aðra guði en mig.''

þetta þýðir basicly að þeir sem trúa á guð mega ekki hafa aðra guði heldur en hann.

en hver er jesú? fólk trúir á jesú og dýrkar hann, er það þá ekki form af skurðgoðadýrkun þó hann sé jú sonur guðs en það er tekið skýrt fram ‘'Þú skalt ekki hafa aðra guði en mig.’' þá hlítur það að eiga við ALLA guði.

er kristin trú þá ekki villutrú?

eins með kaþolika sem dýrka maríu mey og alla þessa dýrðlinga.

Ég er ekki að drulla yfir þessi trúarbrögð ég er einungis að benda á þetta.
So does your face!