Ég er með Risafrelsis inneign frá Vodafone, þar sem ég fæ 2500 kr inneign í hverjum mánuði, en verð að eyða inneigninni innan 30 daga. Nú eru aðeins 3 dagar eftir af þessu tímabili, og ég á enn eftir 1200 kr inneign. Er einhver leið til að gefa hjálparstofnun þessa peninga sem eru í inneigninni? Ég veit að Rauði krossinn er með eitthvað númer, en það er bara hægt að leggja 1500 kr inn á það.

Endilega hjálpið, svo einhver geti notið góðs af þessu.