Ég sendi þetta inn sem grein á /heimspeki en tók svo eftir því að stjórnendur þar á bæ eru ekki ýkja virkir. Því vil ég skapa umræðu hér.



Ef að aðili segir að tónlistarsmekkur sinn sé “bara allt það sem fm957 spilar” þá er
sá aðili leiddur af öðrum smekkshafa.

Líkja mætti þessu dæmi við trú, því jú sumir hlusta á tilteknar útvarpsstöðvar og líkar við þá tónlist en ef sú stöð spilar lag sem aðilanum mislíkar þá skiptir hann einfaldlega um stöð. Hinsvegar ef að trúarflokkur breytir eða hagræðir stefnu sinni þá fylgir fólk samt flokknum þrátt fyrir að skoðun þess sjálfs stríði lítillega eða mikið gegn henni. Að sjálfsögðu ef að fólki finnst flokkur sinn ekki sinna sínum álitamálum þá gengur það úr þeim flokki. Þá er ég ekki aðeins að tala um trúarflokka heldur líka stjórnmálaflokka og þess konar.

Stjórnmála- og trúarflokkar draga fólk á sitt band og á sínar skoðanir en mistekst að leyfa fólki að rækta sínar eigin skoðanir án þeirra samþykkis því þú verður að hafa sömu stefnu og þeir því annars tilheyrir þú ekki þeirra flokki.

Ef fólk er gagnrýnið þá lætur það sig ekki vera teymt
á aðra skoðun en sú sem sín eigin sannfæring mælir um.