Svaðalega talar bróðir minn mikið!
Það er ónáttúrulegt og gengt öllum lögmálum að ein, lítil manneskja geti talað stanslaust, út í eitt, um nákvæmlega ekki neitt!
Á kvöldin er maður alveg uppgefinn og með suð í eyrunum :O
Stundum langar mig bara til að kefla hann!

Og svo er hann svo andskoti krúttlegur að ég fæ það ekki af mér =(

Svo er það gamaldags ís. . . andskotinn hirði 'gamaldags ís'.
En þó sérstaklega ísbúðarfólk sem selur manni hann þegar maður biður sérstaklega um venjulegan.

Ég: Lítinn ís í boxi, með daim kurli, takk.
Hún: Já, hvernig ís?
Ég: Venjulegan.
Hún: Já, ok, gamaldags.
Ég: Nei, venjul. . . ohh.


Helvítisandskotanspirringur útí gamaldags ís og útsendara hans frá helvíti.


En. . . on the bright side, daimið var gott.