Sælt fólk
ég var í bíó á Shutter Island í áðan. Fínasta mynd, enda við hverju öðru að búast frá einum af mínum uppáhaldsleikstjóra. En það var eitthvað lið fyrir aftan mig og ein kellingin söng frekar hátt með einhverjum ömurlegum lögum í hléinu, sagði einu sinni og það í svona “talking rödd” ekki hvíslandi, “þetta er leiðinleg mynd” og í annað sinn “ohhh glötuð mynd” og þegar hún var búin þá sagði hún stynjandi “loksins!”. Og síðan heyrði maður hana blaðra og kvarta yfir minni eitthvað svona inn á milli. Langaði mest að sturta poppi yfir hana. Þetta er mitt nöldur fyrir daginn í dag.