Ég fékk nýtt æði um daginn sem var að fá mér túnfiskbát á Subway. Ég læt engan ost, læt hita brauðið (heilhveitibrauð), skelli síðan bara túnfiski, káli, gúrkum, papriku og svo vel af rauðlauk. Búið.

Ástæðan fyrir því að ég set þetta hér er að alltaf þegar ég er að kaupa mér þetta fæ ég alltaf svona skrýtinn svip frá afgreiðslufólkinu “Ekkert meira?” eða “Enga sósu?” svo mig langaði bara að spyrja ykkur kæru hugarar, hvað setjið þið á túnfiskbátinn ykkar á Subway? :)