Djöfulsins andskotans helvíti, á áramótunum missti ég myndavélina hans pabba í jörðina og fann hana nokkrum klukkutímum seinna í rústi, ég reyndi að kaupa nýja alveg eins til að komast undan að segja honum frá þessu því hann dýrkaði myndavélina sína en svo komst hann að þessu og ég bauð honum auðvitað að eiga mína myndavél með mér og hann mætti nota hana hvenær sem er.
Snillingurinn ég fer með þá myndavél á djammið í gær (eitt glataðasta djamm allra tíma þar sem við enduðum uppá slysó eftir 2 klukkutíma eltingarleik og drama) og ég held ég hafi skilið hana eftir á pizza pronto sem þýðir að hún sé horfin eða þá að hún hafi bara dottið úr veskinu mínu og nú er engin myndavél á heimilinu, ég þarf alltaf að eyðileggja eða týna öllu vá hvað ég er reið útí sjálfa mig! veit samt vel þetta er mér að kenna og tek alveg ábyrgð á því.

Anyways, er einhver hér sem býr svo vel að eiga einfalda digital myndavél sem væri til í að selja mér? notaða og ódýra. Einu skilyrðin er að pabbi geti tekið myndir á jólum og páskum, má vera léleg.

Bætt við 18. janúar 2010 - 01:00
myndavélin fannst, vinkona min tók hana óvart á pizza pronto, fail korkur hjá mér sem má eyða
Sá er sæll er sjálfur um á