Ég vil deila sögu með ykkur, sem mér finnst persónulega alveg fáránleg, en samt svo fyndin!.

Ég var á námskeiði og ca 9 félagar mínir voru á sama stað. Í þessum félagahóp var ein lesbía, 1 bi gella (það vita það samt fáir), 1 bi strákur (og þau tvö eru saman).
Í hálftíma pásunni okkar sat ég ekki með þeim því ég var eitthvað að vesenast með símann minn, en var að tala við ókunnuga stelpu við hliðina á mér á meðan, og við töluðum um allt og rosa gaman og rosa fín stelpa. Svo kom smá þögn, og þá benti hún á félaga mína (sem hún vissi greinilega ekki að ég þekkti) og hvíslaði: Þetta eru pottþétt allt lessur!!

Ég svaraði: nei, reyndar bara ein þeirra, hún er vinkona mín!

þá horfði stelpan á mig með þessum ÓGEÐIS-svip, ég er að tala um að ég hef bara ekki SÉÐ neitt sem lýsir meiri ógeði, og svo stóð hún upp og færði sig frá mér um 5 sæti að pússa á sér neglurnar xD

Öfgar, much?

Eins og ég myndi smita hana af einhverju ógeði, því ég ÞEKKI lesbíu xD
Hafið þið lent í einhverju svona?
Mér fannst þetta eiginlega bara fyndið en samt sorglegt árið 2009…
-Pláneta.