Áfengi og sígarettur eru hættulegri en sum ólögleg fíkniefni, m.a. kannabis, LSD og e-töflur, að sögn helsta ráðgjafa breskra stjórnvalda í baráttunni gegn fíkniefnum.

Ráðgjafinn, David Nutt prófessor, leggur til að breytingar verði gerðar á flokkun fíkniefna til að gera fólki kleift að skilja betur skaðsemi löglegra og ólöglegra fíkniefna.

Nutt segir að áfengi sé fimmta skaðlegasta fíkniefnið, á eftir heróíni, kókaíni, barbitúrat-efnum og meþadon.

Tóbak er í níunda sæti og ofar á listanum en kannabis (11. sæti), LSD (14.) og e-töflur (18.). Nutt lagði áherslu á að með þessu héldi hann því ekki fram að ólöglegu fíkniefnin væru ekki skaðleg, en sagði að gera þyrfti almenningi betur grein fyrir skaðsemi löglegu fíkniefnanna.

Nutt er formaður ráðgjafarnefndar sem breska stjórnin skipaði í baráttunni gegn notkun fíkniefna.


http://www.mbl.is/mm/frettir/forsida/2009/10/29/tobak_haettulegra_en_lsd/


Jæja krakkar, farið að rífast.

Bætt við 31. október 2009 - 16:31
Formaður ráðgjafarnefndar sem breska stjórnin skipaði í baráttunni gegn notkun fíkniefna og um leið helsti ráðgjafi breskra stjórnvalda í baráttunni gegn fíkniefnum, prófessor David Nutt, hefur verið rekinn eftir að hafa lýst því yfir opinberlega að fíkniefnin e-töflur og LSD séu hættuminni en áfengi.

Heimildir bresku fréttastöðvarinnar Sky herma að innanríkisráðherrann Alan Johnson hafi beðið Nutt að íhuga stöðu sína í ljósi yfirlýsinganna , og um leið sagt að hann bæri ekkert traust til hans.

Nutt sagði í samtali við Sky að hann liti svo á að hann hafi verið rekinn. Það að hafa verið beðinn um að segja af sér sé illa falinn brottrekstur.

Athugasemdir Nutt um að margar tegundir fíkniefna væru hættuminni en áfengi fóru þvert ofan í marga en hann sagði meðal annars að það væri ekkert minna hættulegt að taka e-töflu en að ríða út á hesti.

Nutt sagði áfengi og sígarettur hættulegri en sum ólögleg fíkniefni, m.a. kannabis, LSD og e-töflur.


http://mbl.is/mm/frettir/erlent/2009/10/30/rekinn_eftir_ad_segja_afengi_skadlegra_en_onnur_vim/