Ég er búinn að vera veikur síðustu daga og þegar pabbi kemur í hádegismat kveikir hann alltaf á útvarpinu og á stillir á Bylgjuna.
Og okei allt í lagi með það, en þegar hann fer slekkur hann ekki, og mér er eiginlega alveg sama, bara þæginlegt að hafa smá tónlist í bakgrunn.
En eftir 4 daga hef ég tekið eftir því að þau eru alltaf að spila sömu fjögur lögin,eins og t.d. lagið með Gossip ég trúi því ekki að það sé en þá vinsælt (eða hafi verið vinsælt yfir höfuð).
En reyndar er FM957 ekkert skárra.
Og x-ið ekkert skárra, alltaf eitthvað að segja hvað þeir eru með awesome rokk tónlist en spila bara Metallica og eitthvað popp eins og Björk og eitthvað.
Jæja ég er búinn að nöldra, sem betur fer :P