Ég er farinn að geta ráðið öllum fjanda sem ég geri í draumum mínum. Það er svo ólýsanlega æðislegt að geta flogið, eða búið til end of the world scenarios og fylgst með þeim og “upplifað” bara brjálæðislega - æðislega hluti.

Sem dæmi hoppað endurtekið niður rosalega hátt fall, fengið fiðring og allt meðfylgjandi, en birtist svo efst uppi aftur.

Eða sprengja upp Reykjavík, og sjálfan mig (en þeytast bara í burtu lengst í loftið) með kjarnorkusprengju.

Eða flogið. Talað við hvaða einstakling sem er, hitt hvern sem er.

Svo æðislegt. Hafið þið upplifað þetta?