núna í einhverjar vikur á nánast hverju kvöldi er einhver helvítis fáviti sem er að þenja bíldrusluna sína alveg fram og tilbaka og vélin í honum er svo hryllilega hávær að það getur ekki verið löglegt. Án djóks þá minnir hávaðinn mig bara á kókómjólkurtorfærubílana sem voru að keppa hérna í denn, ég er að verða vitlaus á þessu alltaf skal þetta vera á nóttunni þegar maður er að reyna að sofa, ég kíkti útum gluggann og sá að þetta var einhver cherokee drusla, ef ég ætti bazooku þá myndi ég pottþétt skjóta hann!

Ef einhver hérna býr í 108 eða gerðahverfinu þá hlýtur sá að vita hvað ég er að tala um, er einhver eða?