Ég eeeelska fólk sem að nöldrar og nöldrar útaf öllu sem að því dettur í hug! Það að fara inná nöldurkorkinn hérna fyrir neðan og skoða nokkra þræði bara gerir daginn minn.
Ég meina, flest allt þetta fólk sem að vælir undan ákveðnum steríótýpum myndi aldrei fara að gera eitthvað í því í alvörunni. (þá er ég að tala um að labba uppað manneskjunni og segja hvað hann hataði manneskjuna mikið fyrir það hvernig hún klæddi sig eða eitthvað álíka)

Svo líka það að vera með svona fólki í “real life”, það er bara frábært. Að geta hlegið með sjálfum sér og stundum upphátt af einhverjum vera að pirra sig útí einhvern sem að hann/hún þekkir ekki. Æji þið vitið hvað ég meina maður bara brosir útaf svona fólki.

Ég er nú ekki að segja það að það sé ljótt að nöldra, þvert á móti, en stundum mætti maður pæla í því hvað nöldrið manns hljómar fáranlega og er stútfullt af hatri og fordómum. Pælum aðeins í því..

Að því sögðu, :DD


p.s. ég er í svo góðu skapi að allur vilji til þess að rökstyðja eitt né neitt er horfinn. Þess vegna er þráðurinn svona stútfullur af hamingju en engum rökum né staðreyndum :D
If writers wrote as carelessly as some people talk, then adhasdh asdglaseuyt[bn[ pasdlgkhasdfasdf.