Jédúddamía, núna er ég orðlaus. Ég er komin með hundleið á því að vera með svipað ónæmiskerfi og súr gúrka! Án gríns, fyrir sirka 2 dögum var ég með snert af matareitrun og fyrir sirka 5 var ég með smá snert af lungnabólgu. Ég er ekki búin að geta stundað íþróttirnar mínar í sirka tvær vikur og ég lít út eins og .. blöðruselur! Og núna er ég komin með blöðrubólgu, AF ÖLLU. Það er ömurlegt að þurfa pissa um sirka 730 sinnum á dag og líða eins og maður sé að pissa rakvélablöðum. Svo er ég komin með hundleið á túristum og íslendingum sem eru svo út úr heiminum að þegar maður segir ‘Get ég aðstoðað?’ þá segir það ‘Ha, neiii ég ætla að fá pulsu’. Og það segir kannski ‘Pylsu með öllu takk’ og maður byrjar að láta hráa laukinn á og það segir ‘NEI EKKI HRÁANN!’ og maður bara en.. en.. þú sagðir allt :c

Hey btw ég hitti Myhateisyourpain í dag =)
Það eru tvær leiðir til að öðlast innri frið: Að gera