Allt var að beila á mér í dag, ég ætlaði með besta vini mínum á drift æfinguna í dag en bróðir hanns ætlaði ekki sem þýðir að ég og vinur minn förum þá ekki.
Ég ætlaði þá að fara í eitt partý með öðrum vinum mínum bara í næsta hús en gellan sem að ætlaði að halda það hætti við og bauð bara nokkrum vinkonum sínum í kósýkvöld.
Nú þegar að öll plönin fóru í vaskin þá ætlaði ég bara að tékka aftur á vini mínum og hvað hann ætlaði að gera í kvöld og fara jafnvel bara með honum í bíó… en neeee þá er hann víst að fara með bróður sínum á Transformers2 í kvöld og ég er búinn að sjá hana og nenni ekki aftur.

Það eina sem að ég er búinn að gera í dag er að éta afganga af Doritos síðan í gær og horfa á Felix the Cat: the Movie á youtube og það sem að ég er að fara að gera er ekkert!!! nema ef að eitthvað geðveikt kraftaverk gerist og ég finn eitthvað skemmtilegt að gera(annað en CS:S).