Ég þoooo-holi ekki þegar fólk fer að böggast í mér af því mér finnst gamlir kallar heitir. Þoli ekki þegar ég segi 'mér finnst [insert nafni á eldri manni] heitur' þá fæ ég til baka OOOOOOOJ. Það pirrar mig, SÉRSTAKLEGA ef það er frá einhverjum sem dýrkar Zac Efron. Hann er ógeðslegur. Ég bara skil ekki hvernig það að finnast einhver gamall heitur getur verið svona fráleitt. Bara let it go already. MMHM.

Gallapils eru líka fatnaður frá djöflinum. Ég HAAAAAATA gallapils, það eru engin orð sem fá því lýst hvað mér finnst gallapils ógeðslega ljótur og tacky og asnalegur fatnaður. Sérstaklega þegar stelpur ákveða að vera í leggings sem ná ekki alla leið niður við. Gallapils, DIE. Ef ég hefði the power myndi ég brenna öll gallapils á jörðinni.

Ég er í svefngalsa og mun örugglega sjá eftir þessum skrifum á morgun. Góða nótt.