Er að rífast við aðila sem reykir, sem segir að reykingar valdi EKKI lungnakrabbameini né skaði þig og séu ekki skaðlegar í óbeinum reykingum.
Ég er búinn að finna fullt af síðum á netinu sem sýna fram á að ég hafi rétt fyrir mér þegar ég segi að reykingar drepi, eitt stórt sem ég nota er það sem stendur fyrir framan _ALLA_ reykingamenn.. já það sem stendur á pökkunum.

Ég á mömmu og pabba sem reyktu bæði og hafa reykt í mörg ár(yfir 40 ár) og faðir minn er núna að berjast við krabbamein og hann er hættur að reykja á meðan mamma mín heldur því áfram og ég vill reyna að sýna henni fram á hvað þetta er að gera honum og okkur. Og mig vantar ykkr hjálp til þess. Ég vill ekki missa báða foreldra mína í þessi veikindi og vantar því eitthvað nógu uppvekjandi og helst hrollvekjandi til að vekja hana aðeins.

Mamma hætti að reykja fyrir ca 3 mánuðum en byrjaði aftur fyrir 3vikum þannig að þetta snýst ekki um það að hún GETI ekki hætt að reykja heldur það að hún vill það ekki, hvorki fyrir börnin hennar, manninn sinn eða sjálfa sig.

Vona að einhver hérna geti sett saman ágætis grein sem ég get sýnt henni og vonandi mun það bjarga henni frá þessu.
Takk :-)
Að vera er að vera skynjaður.